Ef það er ekki snilld að vera viðskiptavinur verslunarinnar á Þórshöfn þá veit ég ekki hvað 
Lenti reyndar í smá vandræðum með að finna hana í símaskránni, því hún hefur jú breytt um nafn síðan ég flutti af svæðinu - en þarna vinna enn sömu snillingarnir.
Haldið þið til dæmis að eftirfarandi samtal hefði getað átt sér stað í höfuðborginni?
- Sæl Dúa, þetta er Fanney hérna.
- Já blessuð, hvað get ég gert fyrir þig.
- Ég er í smá vandræðum, hann Reynir í Flögu á stórafmæli í dag. Hann er í vinnunni uppi í Vegagerð og okkur systurnar langar svo að senda honum whiskyflösku í tilefni dagsins. Ég veit að vísu að Vínbúðin opnar ekki strax, og þið eruð ekki vön að sendast með vörur og.....
- Þetta er ekkert mál. Ég geng bara frá þessu í vínbúðinni, tek kort hérna í búðinni og sendi hann Jón minn með þetta til karlsins núna í hádeginu. Þú getur svo bara haft samband aftur í dag og lagt inn á mig fyrir þessu 
Finnst ykkur svo skrýtið þó ég legðist í tímabundið þunglyndi um daginn yfir að komast ekki norður að kíkja á liðið?
En - þetta þýðir ekki, þarf að fara að lesa mér til um Öryggis- og áhættumat á vinnustöðum - er búin að lofa upp í báðar ermarnar á mér að mæta á námskeið í slíkri matsgerð á morgunn með húsverðinum og smíðakennaranum (sem einn og sér væri efni í marga pistla
og fara að teikna upp eitt stykki nýtt mat fyrir skólahúsin okkar
Meira seinna 